
Nýr bátur - frétt - smellið hérna
Siggi Hjartar - Ferðir frá Bolungarvík á Hornstrandir, Jökulfjörður og um Ísafjarðardjúp
Sjótaxi - áfangastaðir eftir samkomulagi
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.Nú er báturinn inni í skemmu til eftirlits í skjóli fyrir veðri og vindum.Planið er að setja hann á flot ekki seinna en um miðjan mars.Það er að vísu ekki von á neinum ferðamönnum svo snemma vors,en hver veit.Líklega mun ég samt skrá bátinn fyrir fáa farþega til þess að byrja með,ef einhver kvakar um ferð.Við erum alltaf að reyna að lengja ferðamannatímann,en hefur svosem ekki tekist að neinu ráði.Ég get allavega boðið upp á ferðir í svartfugl,og ef einhver sumarbústaðaeigandinn hefur áhuga á að dvelja í húsi sínu yfir helgi í mars apríl,þá er hægt að gera góðan díl.Það er nefnilega þannig að vorið er mjög sjarmerandi tími í þessum eyðibyggðum,þó deila megi um hvursu snemma maður geti talað um vor.Allavega vaknar útþráin þegar logn er um djúpið og vorsólin glampar á víkur og voga.Svo er alveg möguleiki á að fara í hvalaskoðun með litlum fyrirvara ef það er logn og blíða.
Aðalvík:
Föstudaga og sunnudaga kl 14:00 frá Bolungarvík
Verð: 5.500
Athugið! Áætlunarferðir hefjast fös. 10 júní
Hesteyri:
Ekki verður um að ræða fastar áætlunarferðir á Hesteyri í sumar, en ferðir verða farnar þangað eftir samkomulagi.
Verð: 5.000 kr
Grunnavík:
Verð: 4.500 kr
Slétta:
Verð: 4.500 kr
Fljótavík
Verð: 7.500
0-3 ára ekkert gjald
3 til 12 ára 1/2 gjald
Athugið! Nauðsynlegt er að fólk skrái sig fyrirfram í áætlunarferðir.
Ferðir eru ekki farnar nema um lágmarks farþegafjölda sé að ræða.
Aðrar ferðir eru farnar eftir samkomulagi hvenær sem er utan áætlunarferða.
Báturinn mun sigla austur á Strandir til Hornvíkur og Fljótavíkur - háð veðri.
Upplýsingar í síma: 892-3652 eða í netfangið: bjarnarnes@bjarnarnes.is